Myndin The Secret situr óneitanlega í mér.
Í myndinni kemur fram það sem ég vissi reyndar; að maður er það sem maður hugsar. Myndin fjallar basically um að hugsa aðeins um það sem maður vill en ekki um það sem maður vill ekki. Ef að ég vil t.d. lifa í velsæld og losna við skuldirnar mínar þá á að bara að hugsa um velsæld en ekki einu sinni minnast á orðið skuldir, hvað þá að hugsa um þær.
Gott og vel. Í myndinni eru taldar upp nokkrar sögufrægar persónur sem vissu um og skildu The Secret. Ein þessara persóna er móðir Teresa. Hún sagðist ekki vilja taka þátt í neinum mótmælum (anti-war, anti-terrorism) en hún vildi hins vegar glöð taka þátt í friðargöngum. Munurinn á þessu tvennu er að í mótmælaaðgerðum er orka sett í það sem er verið að berjast gegn hverju sinni t.d. hryðjuverk. Ef fólk einbeitir sér mikið af einhverju, hvort sem það er gott eða slæmt, þá mun (samkvæmt The Secret) alheimurinn senda meira af því tilbaka. Þess vegna er best að einbeita sér eingöngu og aðeins að því sem fólk vill (í þessu tilfelli friður) en hætta alfarið að spá í og tala um hryðjuverk.
Fór eitthvað að spá í þessu í kjölfar frétta í vikunni um að núna sé búið að ljóstra upp um hryðjuverkaáætlanir hér og þar í heiminum, nýlegustu dæmin eru í Danmörku og Þýskalandi. Mér finnst trúlegt það sem þau segja í myndinni: að orsökin fyrir auknum hryðjuverkum sé hið kröftuga stríð Bush gegn hryðjuverkum: The War against terrorism.
Eins og oft áður virðist George Bush Bandaríkjaforseti vera algerlega út á þekju...